Um Gylltu Kistuna
Gyllta Kistan var stofnuð af ástríðu fyrir vönduðum hönnunarvörum og þeirri trú að það ætti að vera auðveldara fyrir Íslendinga að eignast einstaka hluti frá uppáhalds merkjunum sínum. Of oft fylgja því löng leit, óvissa, tollar og allskonar vesen. Við vildum breyta því.
Að eignast einstaka hönnunarvöru ætti að vera einfalt. Við finnum hana, sannreynum hana og komum henni heim til þín. Hver vara er vandlega valin, skoðuð og á sér sögu sem heldur áfram með nýjum eiganda.
Þú færð að njóta þess besta við að finna einstaka hönnunarvöru — við sjáum um restina. Enginn tollur, engin óvissa og engin fyrirhöfn.
Vissir þú?
Vissir þú að vintage getur verið verðmætara en nýtt?
Sumar töskur verða verðmætari með aldrinum.
Þegar ákveðnar designer-töskur hætta að vera framleiddar getur eftirspurnin aukist, sérstaklega ef um er að ræða sjaldgæf módel, takmarkaðar útgáfur eða hönnun sem hefur öðlast stöðu meðal safnara.
Í sumum tilfellum seljast eldri töskur jafnvel á hærra verði en nýjar samskonar töskur í verslunum. Það sem gerir þær sérstakar er ekki aðeins merkið, heldur sjaldgæfni þeirra, saga og staða í tískusögunni.
Vintage er því ekki bara spurning um stíl stundum felast verðmætustu gersemarnar í því sem ekki er lengur hægt að kaupa nýtt.
Gamalt er ekki alltaf minna virði. Stundum er það einmitt það sem gerir hlutinn eftirsóttari.
Verðmæti fer eftir tegund, ástandi og eftirspurn og verðhækkun er aldrei tryggð.